jæja jæja
jæja er ekki komin tími á blogg?
nenni nú ekki að hafa þetta eitthvað langt..
en já það sem er búið að drífa á daga mína síðan síðast er nú alveg ágætlega mikið og skemmtilegt...
fyrir 2 vikum var árshátíðin í vinnuni þar sem það var góður matur skemmtiatriði og nóg að drekka, það var dansað þar alveg fram að lokun og svo var haldið áfram á players, þó svo ég hafi látið mig hverfa snemma var stuðið gríðalegt.
síðustu helgi var spánarhittingur og komu allir nema jenný og sæja.. stemmingin alveg mögnuð, hittumst hjá söru, fórum þaðan á Geirmund sem var að spila á kringlukránni, þaðan var farið í bæinn, stoppuðum á celtic dönsuðum þar smá fórum heim til Heiðdísar og þaðan fór ég að hitta Nóu og dönsuðum við Blámenn og dverga til hálf 7 þá kom ég mér heim...
núna um helgina er ég ein heima og planið að halda partý, eða svo er mér sagt, Elísa er þar við stjórn og það eina sem ég fæ að vita að það verður hérna um helgina.
án efa mikið stuð framundan þessa helgina..
Næstu helgi er svo jólahlaðborð í vinnuni og er þetta í fyrsta skiptið sem ég er ekki að vinna daginn eftir þannig að það verður kannski smá stuð þar á bæ.... fréttir herma að á móti sól verði að spila á players og já annað skiptið í þessum mánuði ælta ég að skella mér á öldungaball þar...
en svona fyrir utan djamm hjá mér hefur ekki mikið spennandi skéð.. skólinn á fullu og bara 2 vikur ca eftir..
ég er búin að gera 2 heiðalegar tilraunir til að kála mér í ræktinni, ekki viljandi þó..
ég er komin með æði fyrir friends og get ég eytt heilu kvoldi í að horfa á þá.. er búin með 5 seríur, er að bíða eftir seríu 6 og ég er strax komin með fráhvarf ....
jæja nenni ekki meira í bili... ég skal reyna að hafa ekki eins langt á milli næst en ég lofa ekki neinu...
og já fyrir þá sem eru með myspace þá eru komnar inn myndir þar...
takk og bless
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir