!!!!!!
alltaf lofar maður að vera duglegur að blogga en stendur svo aldrei við það... það er nú margt búið að ské síðan í síðasta bloggi...það var kveðjupartý 1 feb fyrir þær sem eru hættar eða eru að hætta í vinnuni.. og var Erna svo góð að halda það... dagurinn byrjaði með því að fara í kringluna og eyða mun meiri pening en maður æltaði sér. svo var farið heim til Boggu þar sem við blönduðum okkur voða góða drykki og baka alltof mikið af pizzu..síðan héltum við áfram að drekka og um 9 leytið fórum við til Ernu þar sem allar kellurnar voru mættar og voru bara að bíða eftir okkur til að byrja fjörið.
þegar að þær voru allar búnar að fá sér svona í aðra tánna sýndum við þeim myndashow sem við bjuggum til... og sló það svona í gegn voru meira að seigja feld nokkur tár...þegar að fólk var komið í gírinn var skellt sér á ölver þar sem átti að taka lagið. en okkur var bannað að syngja... veit ekki afhverju hehe... var ég alltafvegana mjög fegin..síðan fóru þessar gömlu heim og við hinar í bæinn... ekki man ég mikið frá þeirri bæjarferð...
26. jan kom viðbót við fameliuna...en þau dagný og ómar eignuðust gullfallegan prins... sem var aðeins að flýta sér í heiminn en hann kom 7 vikum fyrir tímann en hann er eitthvað voða mikið að flýta sér þessi prins þar sem hann er bara orðin algjör bolla...
15 feb var skellt sér á þorrablót reyndar bara hérna heima en það mættu alveg 30 manns. og var nóg að borða og að drekka... ég æltaði nú reyndar ekkert að detta í það fékk mér 2 bjóra hérna heima.. svo komu nóa og bogga og við æltuðum aðeins að kíkja á smá bíltúr sem endaði með partý í garðabæ svo heima hjá boggu.. og það partý endaði í bænum. þar sem ég æltaði ekki að fara í bæinn tók ég ekki með mér pening eða neytt..
dagurinn eftir átti að fara í að læra fyrir 2 próf... en deginum var eytt í þynku og að sofa... um nóttina fekk ég þessa skemmtilegu ælupest og lá í rúminu allan mánudaginn.
í dag byrjaði ég í vinnustaðarnáminu mínu.. fyrsta vaktin var ekkert spennandi ekkert að gera og var ég eila bara að bíða að klukkan yrði 4.
vonandi að það eigi eftir að batna.
ég ælta að taka þessar vaktir frekar ört svo ég geti klárað fyrir páska og skellt mér vestur..
þar sem ég hef nú ekki farið vestur um páska ég veit ekki hvað lengi... og þar sem ég ákvað að vinna ekki þessa páska eins og alla aðra... fannst mér alveg tilvalið að skella mér á ísó enda nóg um að vera þar... skíðavikan, aldrei fór ég suður og svo á að skíra litla prins og svona..
en jæja ég er farin að bulla bara... ætli næsta blogg komi ekki bara eftir bústaðarferðina í apríl?? ég lofa eingu.. en þanngað til næst bæbæ
20. febrúar 2008 klukkan 00:18
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir
jæja þetta er ágætt ég er í tíma og á að vera að fylgjast með
kv. Anna Guðný