fór í kringluna með Elínborgu og hún lét mig kaupa fullt fullt af fotum skóm og fylgjidóti...
ég keypti mér til dæmis 2 kjóla 2 leggings skó nærtföt hálsmenn og eyrnalokka....
en það er komið plan fyrir helgina sem er ekki af verri endanum...
hún elínborg er búin að redda partýi fyrir okkur á ekki verri stað en dönsku herskipi þar sem að það eru fullt af sætum dönskum sjóliðum...
þar sem áfengið mun flæða útum allar dyr og alla glugga:) hver getur neytað svona partýi?
ekki ég allaveganna....
svo á bara að halda í bæinn eftir sjóliðadjammið og halda áfram að djamma þar kannski maður dragi nokkra sæta sjóliða með hver veit?
í gær lenti ég í miður leiðinlegum aðstæðum...
Þannig var að ég var komin uppí rúm og undir sæng þegar að hildur og elínborg hringja og byðja mig að koma með sér í pool og ég hafði eila ekkert val og varð að fara.....
og þegar á staðin er komið kom upp sú þörf hjá mér að fá mér bjór sem ég svo geri.. og svo voru þeir orðinir 2 og svo kemur strákur til hildar og vill endilega bjóða henni uppá tequila sem hún þáði en í staðin fyrir að drekka það sjálf gaf hún mér það og ég notla drakk það...
þegar að út í bílinn var komið laumaði elínborg á einum bjór í aftursætinu sem ég notla drakk og ég var farin að finna vel á mer...
og stelpunum til mikilar skemmtunar fékk ég líka þennan svakalega hiksta og ætlaði hann bara aldrei að hætta...
ég var nú ekki sátt við stelpurnar að hafa dregið mig svona út á fimmtudegi og látið mig drekka bjór og tequila... skamm stelpur....
en jæja ég ætla að fara að skoða nýju fötin mín og ath með hann halldór þar sem hann er lasin...
þanngað til næst bless bless
01. september 2006 klukkan 20:38
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir Engin athugasemd
um daginn var ég að horfa á þátt með jamie oliver og hann eldaði svo geðveikt girnilegan kjúkling og í gær ákvað ég að prufa að elda hann og fjolskyldumeðlimir slóust um síðustu bitanna og kjúllinn var pantaður aftur mjög fljóttlega:)
ekki slæmt þetta ha?
en annars er ekki neytt að frétta er bara búin að vera úper þreytt síðustu daga...
er að spá í að fara til læknis þar sem að ég held að ég sé pínu blóðlítil sem er víst algent hjá folki með sjúkdóm eins og minn:(
en ég held nú að ég sé ekkert alvarlega lá í blóði en betra að tékka þetta...
en annras er ekkert merkilegt að frétta... er að fara á laugardaginn og eyða penning...
sá svo geðveikt flottan kjól í kringlunni í gær og svo sá ég geðveika skó við kjólinn og svo auðvitað sá ég 2 boli sem mér langar í en ég sá nú eingar gallabuxur og það er held ég bara útaf því að mér vatnar þær á bara 2 og það er komið gat á aðrar þeirra....
planið fyrir helgina er djamm..
allaveganna á laugardaginn...
en annars þá nenni ég ekki að hafa þetta lengra núna ætla að fara að læra..
steinunn ég get ekki sagt það sama um þig og þú sagðir um mig á blogginu þínu kannski þú viljir bæta eitthvað úr því?
01. september 2006 klukkan 01:31
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
okey ég var að lesa á textavarpinu að það var banaslys í dag þetta er 19 dauðsfallið í umferðinni á þessu ári...
ég bara spyr hvað er að ykkur fólk?
hvernig væri að leggja aðeins fyrr á stað og keyra hægar og koma lifandi á áfangastað en að leggja seinna af stað og keyra eins og brjálaðingur og komast ekki áfangastað?
nei svona í alvoru hvað fái þið útúr því að keyra hratt?
þetta er kannski eitthvað röfl bara í mér en mér þykjir vænna um líf mitt en það að fórna því til þess eins að vera á réttum tíma eða að vera töff og keyra hratt...
afhverju er ekki hægt að vera bara töff og keyra á löglegum hraða?
pælið í því að það eru 29 manns búin að deyja í umferðarslysi á 8 mánuðum?
pælið líka aðeins í öllu fólkin sem hafa mist ástvini og skyldfólk í þessum 19 slysum...
þetta er notla bara fáránlegt...
ég meina það þarf ekki nema ein pínu lítil mistök og þú gætir lenti í árekstri sem gæti endað með því að þú sért í hjólastól það sem eftir er eða eitthvað miklu verra en það...
er lífið virkilega svona leiðinlegt að þið viljið bara enda það einn tveir og tíu...
ekki skil ég hvað fólk fær útur því að keyra hratt... en ég meina þetta er bara ég...
29. ágúst 2006 klukkan 04:34
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
já þetta er bara blogg nr 3 á jafn mörgum dögum...
í gær varð ekki mikið úr tímanum mínum í skólanum þar sem að það var allt lokað og læst þegar að ég kom...
og var lítið við því að gera en að fara heim aftur.. í staðin fór ég með mömmu og Halldóri aðeins uppí mosó á einhvern markað og svo fórum við í ikea þar sem ég verslaði hitt og þetta eins þar á meðal lak og koddaver þannig að núna er ég komin með sett í stíl semsagt koddaver sængurver og lak... og svo verslaði ég þvottakörfu og svona...
síðan var haldið heim og grillað og svona...
en eftir matinn lagið ég mig þar sem ég var nú að fara að vinna...
og aldrei þessu vant náði ég að sofa í 3 tíma fyrir vaktina... en nóttin var hin allra rólegasta...
í kvold er ég að fara að hitta spánarstelpurnar við fundum loksins tíma þar sem meirihlutinn af okkur er laus... en við ætlum að hittast á vegamótum og svo ætla vonandi 2 nýjar að bætast í hópin en það eru semsgt stelpur sem voru úti árinu eftir okkur...
þannig að þetta verður bara gaman...
en í dag ætla ég bara að gera eitt og það er að sofa og slappa af er frekar þreytt núna enda er ég komin hálfa leiðinna uppí rúm....
en þanngað til næst bless bless
og já munið kommentin
27. ágúst 2006 klukkan 14:15
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 3 athugasemdir
já það er laugardagur og ég er á leiðinni í skólann:( en ég get huggað mig við það að þetta eru bara 4 skipti og ég fæ 1 einingu fyrir...
en í gær fór ég að þjóna í veislunni og var það bara mjög fínt... og góður matur líka:) ég gerði ekki mikið eftir að ég var búin þar sem ég fór bara heim og uppí rúm þar sem ég var búin í fótunum eftir öll hlaupin...
planið fyrir daginn er ekki merkilegt er að fara í skólann núna og svo ætla ég bara að hitta mommu í bænum og gera eitthvað með henni og halldóri..
á morgun er ég að fara að hitta spánargellurnar á kaffihúsi...við ætlum að fara að grafa upp gamlar minningar frá sevilla:)
en já heba stelpurnar á myndinni eru steinunn elísa og anna og hún var tekin í Búlgaríu...
en ég hef þetta ekki lengar þar sem ég ætla að koma mér í skólann við heyrumst
26. ágúst 2006 klukkan 17:55
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir Engin athugasemd
ég var að horfa á Dr.Phill í gær og þar var verið að tala við Dr.Phill fjoslkylduna sem á við öll heimsins vandamál að stríða eins og t.d framhjálhald dóttir þeirra komin með barn bara 15 ára og yngri dóttirin vill láta ættleiða sig...
í þættinum í gær var verið að tala um eldir dóttirna sem á barnið..hún vill nefla fara að deita aftur og svona aðeins að lifa lífinu en foreldrar hennar banna henni það þar sem að það fór ekki vel síðast... og þau vilja ekki að hún stundi kynlíf þar sem hún gæti orðið ólett aftur.. já maður spyr sig afhverju er hún þá ekki bara á pilluni eða eitthvað álíka en nei til að flækja málið aðeins þá trúir mamma hennar ekki á getnaðarvarnir fyrir 15 ára unglingsstúlkur.. humm á hún þá bara að eignast fullt af bornum fyrir 18 ára aldur aðþví að hún á ekkert eftir að hætta að sofa hjá aðþví að mamma hennar og pabbi banna henni það...
en svona til að tala um eitthvað annað þá er ég að fara að græða penning á eftir... ég er nefla að fara að þjóna á eftir í afmæli hjá konu sem ég er að vinna með....2000 kall tímann ekki slæmt það ha?
en annars er ekkert að fretta skellti mer á kaffihús í gær með elínborgu og það var nú frekar skrauttlegt hjá okkur þar sem bíllinn byrjaði á þvi að renna útúr bílastæðinu þegar að við vorum að fara útur honum þar sem ég gleymdi handbremsuni.. en ég var fljótt að hoppa uppí bílinn og redda þessu..
eftir kaffihúsið fórum við til hildar þar sem hún var að passa sætan hund sem hætti að vera svo sætur þegar að hann byrjaði að gelta á mig og urra...
en ég ælta ekki að hafa þetta lengra núna... þanngað til næst bless bless
25. ágúst 2006 klukkan 18:41
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 3 athugasemdir
jæja þá eru 3 dagar búnir í skólanum og mér lýst bara vel á þetta allt saman....
annars eila bara ekkert að frétta er bara að venjast skólalífinu og ég er að venjast því að vakna svona snemma þarf núna að vakna alveg korter yfir 7 í staðin fyrir korter í 8 eins og ég gerði alltaf þegar að ég var í borgó... og svo er oll þessi umferð sem er á morgnanna mjög skemmtileg í morgun t.d lenti ég fyrir aftan einhverja traktora og þá ekki bara 1 heldur 2 og þeir keyrðu á 20 og það var ekki hægt að taka fram úr þeim þar sem að þetta var bara á einbreiðri akrein ég get ekki sagt að mér hafi verið skemmt...
en planið fyrir helgina er ósköp lítið á að mæta á námskeið á laugardaginn og svo er ég á næturvakt þá nóttina...
en núna er ég að spá í að leggja mig aðeins áður en ég fer að læra og svo ælta ég að skella mér í orkuverið í kvold og sprikla aðeins...
þanngað til næst bless bless
24. ágúst 2006 klukkan 21:28
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir Engin athugasemd