já góðir lesendur ég er bara uppfull af rugli þessa daganna... er bara farin að blogga nánast uppáhvern einnasta dag.. og veit ég alveg ástæðuna fyrir því... hún er sú að ég er enþá að drepast í endajaxlinum og get því ekki talað mikið þó svo að ég hafi aðeins mist mig aðan í bílnum hjá ellu... en já það er bara komin vetur og það ekkert smá mikið... fór til hennar elísu í gær þar sem elísa, anna og marsbúinn voru í gírfurlegu stuði.. og svona til að lýsa stuðinu þá var marsbúinn í óðaönnn að reyna að brjótast útum naflann eða svo virtist vera þar sem kúlan var bara eila öll svona öðrum meigin mjög spés... en ég og elísa skelltum okkur í bæinn á meðan að anna fór heim með bumbuna... það hefur nú ekki farið framhjá neinum að það duttu fáein snjókorn í gær... og svona aðeins til að ræða þau.. þá verð ég bara að seigja ykkur frá því að ég og elísa skemmtum okkur eila betur utan dyra en innadyra í sléttbotna skónum okkar... en það gekk einmitt ekki betur en það að labba upp laugaveginn en að það voru tekinn 2 skref áfram og svo var runnið svona 3-4 afturá bak voða spés... en þar sem ég er nú svo gáfuð þá hafði ég vit á því að klæða mig vel þar sem ég nenni ekki að fá flensu ofan í allt saman... og var það bara voða sniðugt hjá mér þar sem mér var bara ekkert kalt í gær nema þegar að hún elsku steinunn var búin að skutla mér heim.. en þar sem ég er ekkert rosalega há í loftinu varð ég að vaða snjó uppá hné og þar sem jafnvægið var ekki alveg uppá sitt besta þá varð ég að taka eina biltu svona í lokin og endað það með því að ég lá bara með andlitið á bólakaf nánast ofan í snjóskafli á bílastæðinu heima... en ég var svo vel klædd að mér varð ekki meint af í þetta skiptið... en svona fyrir þá sem hafa ekki litið útum gluggann í dag og gera sér því ekki grein fyrir því hversu mikill snjór er þá varð ég að moka mig inn þar sem það var skafl alveg við hurðina og þar sem ég var nú ekki með skóflu í veskinu varð ég bara að nota verkfæri guðs eða öllu heldur fæturnar... og þar sem að það var komin smá hálka og ég með mitt góða jafnvægi hrundi ég aðeins 2 aftur á hausinn... svo í morgun var ég voða hress eða þannig og var bara voknuð um 9... en ég var nú ekkert á því að fara á fætur strax og kúrði aðeins lengur... síðan var komið aðþví að ég átti að mæta í vinnuna en bíllinnn minn var hjá elísu og ég var ekki í stuði til að ná í hann og bað því ástkæra móðir mína að skutla mér í vinnuna... og þar sem við mægur erum mjög tímalega í öllu var lagt snemma af stað sem betur ferð þar sem við festum bílinn á bílastæðinu og það tók sinn tíma að losa hann... en það tók mig rúmann hálftíma að komast í vinnuna sem tekur yfirleitt 5 mín... eftir vinnu var komið aðþví að ná í bílinn minn... en áður en það var gert var stopað á hressó þar sem hún Hildur var..eftir að eg og ella vorum við búnar að skila henni var komið aðþví að ná í gripinn en þegar að við komum til elísu sást bara í helminginn af bílnum þar sem að það var búið að riðja götuna og allur snjórinn af götunni var komin í kringum bílinn minn þannig að það var ekkert annað inní myndinni en að bruna heim og ná í skóflu.. Elínborg var svo hugulsöm að skutla mér aftur til elísu... þar sem ég byrja eins geðsjúklingur að moka og moka og moka og moka og á meðan að ég mokaði stóð ella og hló og hló og hló... á meðan að ég var aðal skemmtiefni hennar var ég í óða önn að moka síðan er komið aðþví að prufa að keyra útur skaflinum sem hún ella tók að sér og í fyrstu tilraun gekk það... ella vill meina að hún sé bara svona rosalega góður ökumaður þar sem hún þurfti einmitt að losa steinunni í nótt þar sem hún var föst... en ég vill meina að það hafi verið svo vel mokað hjá mér.. sem það var... en jæja nóg komið af bulli ég ætla að fara að gera eitthvað af viti og fara að leggja mig... þanngað til næstt bless bless
20. nóvember 2006 klukkan 09:49
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
já ég ætla að væla aðeins herna núna.. þannig er að síðustu dagar hafa verið langt í frá að vera góðir hjá mér.. til að byrja á byrjuninni þá fór ég á ball á nasa á laug og tók þar nokkara danssveiflurnar og einmitt í einni þeirra kom eitthvað fyrir bakið mitt og er ég búin að vera að drepast alla vikuna og ekki bætti það úr skák þegar að Theodór bróðir var að æfa sig í tækvondó og notaði mig sem púða og hann sparkaði í bakið á mér hann vill halda því fram að það hafi verið óvart en ég er ekki að kaupa það.. næsta mál á dagskrá er táin mín.. fólki finnst einstaklega skemmtilegt að stíga á hana og þar sem hún er viðkvæm fyrir er það ekkert sérlega gott og einmitt þegar að Theodór var að æfa sig í tækvondó á mér lenti hann svona skemmtilega á tánum á mér með hælinn að ég hélt að þarna væri ég að fá mitt fyrsta beinbrot en svo var víst ekki en í staðin hlaut ég 3 væna marbletti og mikla verki.. og en og aftur var þetta óvart hja drengnum. svona ca síðustu eina og hálfa vikuna eru efri endajaxlarnir að rembast við að brjótast niður.. með tilheyrnadi verkjum og bólgum.. en svo í dag og í gær hafa þeir verið að láta mikið vita af sér og á tímabili í dag í vinnuni var ég með hita og var bara að drepast í kjaftinum og svo fer mamma að skoða þetta eitthvað þegar að ég kom heim úr vinnuni og þá kom það bara í ljós að það væri ekkert pláss fyrir jaxlanna en þeir vildu samt komast niður og ákváðu þá að fara bara aðra leið og sú leið var út á hlið.. sem ég er auðvitað eingann veginn sátt með þar sem það þýðir það að það þarf að rífa þá úr og miðað við fyrri reynslu er ég ekkert rosalega heit fyrir því.. en þetta er ekki búið ennm... dagurinn í dag gekk gjörsamlega á afturfótunum.. það byrjaði þannig að ég fór í bankann þegar að ég kom þanngað fattaði að ég hefði gleymt blaði heima sem ég varð að hafa þannig að það var brunað heim og náð í blaðið.. síðan eftir bankaferðina fór ég á sorpu þar sem ég var með fullt skottið af flöskum og þegar að ég er að taka stærri pokann úr skottinu rifnar pokinn og allar flöskurnar útum allt á bílastæðið vá mér langaði að hoppa að gleði eða þannig... síðan er förinni haldið áfram í bræðurnir ormsson það gekk nánast vandræðalaust fyrir sig nema þegar að ég er að labba út tekst mér að labba á glerhurðina.. en sársaukinn var ekkert miðað við niðurlæginguna þar sem búðin var full og það litu allir við og mér leið eins gullfisk í glerkúlu.. síðan eftir þessa skemmtilegu ferð ætlaði ég að fara að kaupa tvinna og átti það að vera einhver sérstakur tvinni sem var bara til í voge allt í lagi með það mamma var búin að láta mig fá tvinna til að fara með og ég þurfti að fá alveg eins nema hvað þegar að ég er komin fyrir utan voge fatta ég að tvinninn frá mommu er heima og ég vissi ekkert hvað ég átti að kaupa þannig að ég hafði ekki neytt val annað en að fara heim að ná í tvinnan.. síðan mæti ég í vinnuna.. vaktin gekk nú nánast vandræðalaust fyrir sig fyrir utan smá hita og verkji í endajaxlinum.. jæja núna er ég búin að væla alveg nóg.. vonandi að ég sé ekki búin að drepa ykkur úr leiðindum... en þanngað til næst bless bless
18. nóvember 2006 klukkan 07:14
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
ég sit hérna við eldhúsborðið með heitan ofnin og í flíspeysu (og það skeður ekki oft að ég fari í flíspeysu..) og það var eldri kona að labba hérna framhjá í úlpu og með húfu.. og hún var greyið að berjast við vindinn og það sést á henni að hún er að frjósa úr kulda.. og vorkenndi ég greyið konuni mikið.. síðan er mér litið í átt að Esjuni og þar er bara allt orðið hvít.. síðan sé ég hvar litli bróðir kemur hlaupandi í gengum garðinn á peysunni eins og vanalega... hann kemur inn með rautt nef rauðar kynnar og hor niður á herðar.. og áður en að hann nær að heylsa fær hann kast.. og ég skil bara hvorki upp né niður fyrr en hann bendir í átt að glugganum sem ég er búin að vera að fylgjast með konuni í gegnum.. og ekki sé ég neytt fyndið úti.. en bróðir minn heldur áfram að láta öllum illum látum og bentir á gluggakistuna... þar sé ég að móðir mín er búin að koma fyrir 2 jólasveinum.. en um daginn var hún einmitt búin að planta jólakertastjaka á borðið í holinu... ég var ekki lengi að rífa jólasveinnana niður úr glugganum.. en móðir mín ástkær var sko ekki sátt við það og reif af mér jólasveinahjónin og kom þeim fyrir í glugganum á sama stað og áður og sagði að þetta ætti að vera þarna og við ættum bara að láta þetta vera. það sem verra er að hún er búin að versla allar jólgjafir og hún er mikið að spá í því að fara að skreyta um helgina.. en þar sem ég hótaði að flytja af heimann ef af því yrði hún var ekki sátt en ákvað að bíða fram á 1des. ég verð nú bara að spyrja ykkur kæra fólk hvað er að? það er búið að setja jólaskraut í kringluna og smáralind það er verið að koma upp jólaljós á laugarveginum og það er komið jólaskraut á kaffihús bæjarins.. og um daginn var ég í verslun með mommu og mér til mikillar skelfingar var verið að spila jólalög. halló fólk það er rúmlega mánuður í jólin afhverju að byrja svona snemma? ég skil þetta ekki alveg.. en svona til að tala um eitthvað annað þá er hún steinunn loksins búin að skrifa kommentin frá búlgaríu upp og setja þau inn í tölvuna og eru þau hérna til hiðar og einnig herna http://steinunnhelga.bloggar.is/sida/27637/ ykkur á örugglega ekkert eftir að finnast þetta fyndið en það er það samt.. en jæja ég er búin að röfla nóg um jólaskraut.. ég er farin að stela jólasveinum úr glugganum.. þanngað til næst bless bless
16. nóvember 2006 klukkan 22:57
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 4 athugasemdir
jæja eftir þetta innihaldsmikla og fróðleiksmikla blogg hérna síðast er erfit að fylgja því eftir en ég skal gera mitt besta!!! veit ekki alveg hvar ég á að byrja á bullinu.. kannski ég byrji bara á helginni?? en á föstudaginn þá var ég í fríi eins og vanalega í skólanum á föstudögum og þar sem þaðvar brjálað veður áhvað ég að sækja bræður mína í skólann og við áhváðum að baka brownie og cookie.. sem heppnaðist líka svona vel... síðan kom ella í heimsókn til að smakka browine hjá mér.. þegar að mamma kemur heim var hún í stuði til að baka og áhvað konan að baka kleinur og stóð hún fast á því að ég og ella myndum aldrei ganga út ef við gætum ekki bakað kleinur þannig að við fengum svuntur og okkur var skipað fyrir alveg hægri vinstri af mömmu.. en það sem kom útur þessu var að við kunnum að baka kleinur, skinkuhorn og kanelsnúða.. þannig að við ættum pottþétt að ganga út núna... right... en þar sem mamma stóð fast á sínu var ekki um neytt annað að ræða en að fara á djammið seinna um kvoldið og sannreyna þessa kenningu hjá gömlu konunni.. og var byrjað heima hjá hildi í brjáluðu veðri.. og vorum við alltaf á leiðinni í bæinn en það drógst alltaf eitthvað og endaði það með því að við tókum bara einn laugara þar sem það kom í ljós að það var ekki hræða í bænum nánast og ég efast um að við hefðum gengið út það kvöldið... en svo í gær vakti mamma mig um 2 og þá var ella að leita sér af ferðafélaga til að fara með sér í ikea og auðvitða sló ég til en við komumst aðþví þegar að við vorum komnar að smáralind að allir aðrir íslendingar voru líka á leiðinni í ikea þannig að við hættum við og fórum á kaffihús.. seinna um kvoldið var matarboð hérna og þar sem ég borðaði yfir mig var ég ekki í stuði til að fara út á lífið.. en auðvitað sannfærði ella mig til að koma með sér í afmæli.. ég ætlaði að bara að fara þanngað og svo heim að sofa.. en svo hringjir Heiðdís spánardíva í mig og seigjist vera fara á ball með sálinni á nasa og hún vildi endilega fá mig með og þar sem minn helsti veikleiki er sálin þá áhvað ég að kíkja aðeins en þetta aðeins var til kl 6.. en ég þurfti reyndar að bíða í 3 korter í taxaroðinni í ógeðslegum kulda og nældi ég mér í kvef þar og ég er ekki frá því að hálsbólgan sé að fara að kíkja í heimsókn... en ekki sé eftir því að fara þar sem sálin stóð alveg fyrir sínu.. í dag er ég búin að vera á náttöftunum í allann dag og er enn.. en svona til að bulla enþá meira er ég með planið fyrir næstu daga líka hérna: 18-19 nóv: sumarbústaður með stelpunum 24 nóv: jólahlaðborð í vinnuni og það fylgjir alltaf djamm með því 30 nóv: rockstar tónleikarnir þar sem það verður líka djammað eftir þá
og svo er próftaflan mín komin og ég slepp bara nú bara nokkuð vel en ég tek bara 2 bókleg próf og 1 verklegt.. ég er samt frekar ósátt við það hversu seint prófin eru en síðasti kensludagur er 28. nóv prófin byrja 29.nóv en ég fer í HBF 6.des og HJU 11.des tek reyndar HJUverklegt 22.nóv en það próf tekur bara 20 min en þó svo að það taki mig bara 20 mín þá er ég mest stressuð fyrir það og er mér farið að kvíða mjög mikið fyrir því... en þetta kemur allt í ljós 22. nóv hvernig gengur... en ég ætlað ekki að hafa þetta lengra núna þanngað til næst blessbless
13. nóvember 2006 klukkan 00:13
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
jæja gott fólk svona í tilefni að því að við stelpurnar vorum að fjárfesta í miða á toby og hitt liðið þá fannst mér rett að blogga smá og auðvitað að setja mynd af kyntröllinu... og svo einnig til að minna ykkur á það að toby er frátekin.. hún hildur björg fékk hann gefins og þessvegna látið þið hann kjurt.. takk fyrir pent bless bless
07. nóvember 2006 klukkan 22:26
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 8 athugasemdir
bara svona rétt að láta vita að ég er á lífi síðustu dagar hafa verið eitthvað í þessa átina: - 29 okt var óvænt afmælisveisla fyrir sigríði.. sá dagur var algjörlega djammlaus - 30 okt var legið í leti allann daginn og daginn efir líka.. - 31 okt ég og hildur vissum ekkert hvað við áttum af okkur að gera þar sem ella var í boston þannig að við láum heima hjá henni með súkkulaði krem og skeiðar að horfa á familie guy.. fórum svo í bíó um kveldið -1 nov fékk fullt af penning losaði mig visakortið og ella kom heim frá Boston - 2 nóv var ég að vinna -3 nóv fór ella til slóvakíu.. ég fór uppá stofu til mommu hún setti rúllur í mig og ég var með krullur.. fór til hildar hún málaði mig og gerði mig ýkt sæta... og já hún lánaði mér kjól.. fór heim mamma lagaði á mér hárið og ég fór í fyrirpartý og svo á árshátið og svo á players.. þetta kvold drakk ég mikið dansaði mikið, söng mikið fékk illt í fótana fór úr skónum lét mommu fá þá og fékk alveg fullt af fallegum marblettum.. fór heim um 6 sofnaði um 10.. -4 nóv var þunn næstum allann daginn fór á næturvakt lét mér leiðast þar alla nóttina -5nóv svaf til 2 fór í afmæli hjá magneu mist fór heim í náttfot 10 mín seinna dróg hildur mig með sér að passa..kisinn hennar var kolvitlaus og klóraði mig nokkuð oft til blóðs.. ´
fórum með pizzu til gumma eftir að við vorum búnar að passa..
- 6 nóv svaf ekki yfir mig í fyrsta skiptið í langann tíma fór í skólann lærði að mata og bursta tennur.. fékk útur heilbrigðisfræðiprófinu og fékk alveg 9.. fór heim lagðist uppí rúm og ligg þar en..
jæja svona eru síðustu dagar búnir að vera hja mér..
en ég er einmitt líka búin að henda inn myndum frá árshátíðinni á www.fotki.com/ birgittayg
en þanngað til næst bless bless
06. nóvember 2006 klukkan 22:14
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
jæja her kemur smá blogg.. þó svo að ég nenni ekki að blogga... en já síðasta vika hefur verið frekar túristaleg hjá okkur stelpunum... þar sem Iitu vinkona hennar hildar frá finnlandi hefur verið í heimsókn á íslandi.. á mánudaginn fórum við og náðum í finnann á keflavíkurflugvöll og beint af flugvellinum á hressó til að borða.. síðan um kvoldið var farið í pool... á miðvikudeginum tókum við túristann á þetta og röltum um miðbæinn i ca 4 kl tíma en við heimsóktum meðal annars hallgrímskirkju, ráðhúsið og þjóðminnjasafnið og fleira og svo var endað á vegamótum og borðuðum þar... um kvoldið var svo skellt sér í bíó... á fimmtudaginn fórum við svo í bláalónið og svo í grindavík að borða... og svo var auðvitða farið á hressó um kvoldið þar sem við fengum okkur nokkra bjóra eða svo... á föstudeginum var ég að vinna þannig að ég fór ekki langt... en á laugardaginn hélt Hildur partý sem var hið skemmtilegasta... en ég var einmitt búin að ákveða að fara ekki í bæinn eftir það en þar sem að stuðið var gífurlega mikið varð ég að kíkja aðeins í bæinn en þetta aðeins var alveg til rúmlega hálf 7.... og svo síðustu nótt vaknaði ég kl hálf 5 og var komin fyrir utan hjá ellu kl korter í 5 og hjá hildi kl 5.. við vorum komnar á kef flugvöll kl 6.. þar sem við kvöddum Iitu og héltum svo í bæinn heim að sofa reyndar með smá stoppi á subway en ég er búin að henda inn nokkrum myndum á www.fotki.com/birgittag það koma fleiri seinna... þanngað til næst bless bless
24. október 2006 klukkan 05:47
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir Engin athugasemd
jæja djamm planið fyrir helgina er farið út i veður og vind þar sem að ég er komin á pensilín og er víst ekki að fara drekka mikið. en það er alltaf hægt að skemmta sér án áfengis.. kannski ég fari að taka upp þann sið.. en síðustu dagar hafa nu ekki verið ýkja spennandi.. er búin að vera fastagestur á læknavaktinni í gær og í dag.. fór meira að seigja 2 í gær og svo aftur í dag og já aftur á mánudaginn.. en það er frí í skólanum í dag og á mánudaginn þannig að í dag er ég bara búin að liggja uppí rúmi með fæturnar uppí loft... og það síðan kl 8 í morgun.. þar sem að ég svaf lítið í nótt og gafst upp kl 8 að reyna að sofna... en ég veit ekki alveg hvað ég mun gera af mér í kvöld.. það veltur allt á henni ellu gellu... á morgun verður mjög líklega matarboð hér á bæ... og svo sáu stelpurnar jákvæða hlutan við það að ég er ekki að drekka um helgina... já ég verð á bíl.. en síðustu dagar eru nú bara búnir að vera ágætir held ég.. fór í skólann á fimmtudaginn og það var próf ú hjúkrunverklegt þar sem við vorum prófaðar í hárþvotti í rúmi.. og ég fékk það skemmtilega hlutverk að leika sjúkling.. sem gekk út á það að liggja undir sæng og láta þvo á mér hárið.. þetta var mjög spés.. en ég var allaveganna ekki með óhreint hárið.. en ég nenni ekki að hafa þetta lengra... þið meigið alveg kommenta eitthvað.. þanngað til næst bless bless
13. október 2006 klukkan 20:03
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 2 athugasemdir
síðustu dagar fór í óvissuferð drakk alltof mikið fór í bæinn var lamin af klikkuðum dansara.. fór í afmæli drakk ekki neytt fór í heimsókn til Heiðdísar og fór líka í heimsókn í garðabæinn fór að vinna fór í skólann kaffihús í hádeginu vinna um kvoldið fór í skólann kaffíhús í hádeginu fór svo út að borða á ítalíu með elísu önnu ellu og elín helgu fórum í bíó þar sem elísa misþyrmdi litla puttanum mínum.. fór í skólann mætti í vinnu fór á kaffihús.. fékk 8,5 fyrir að tja tilfinningar mínar á blaði, fékk 8 í heilbrigðisfræðiprófi fór til ellu hún helt að hún væri hundur og kom skríðandi á 4 fótum til dyra og geltandi.. ég hélt að hún væri geðveik fór til læknis fór í skólann fór að vinna ella náði í mig í vinnu og fór með mig á hressó fór á inniskónum og röndóttum sokkum fór ekki í skólann bakaði köku og vöfflur fór á kaffi vín og borðaði mikið..
næstu dagar vinna í nótt vinna næstu nótt afmæli á sunnudag skóli á mánudag og sofa skóli á þriðjudag skóli á miðviku dag og halda volare kynningu skóli á fimmtudag og fara en eina ferðina til læknis frí í skólanum á fostudag og svona til tilbreytingar er ég að fara til læknis ætla að reyna að fá my personal shopper til að koma í kringluna og kaupa skó og djammföt. föstudagskvold djamm laugardagskvold djamm sunnudagskvold djamm mánudagur sofa út frí í skólanum
jæja þá er bloggið komið fyrir vikuna... takk fyrir pent bless
06. október 2006 klukkan 23:46
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd
jæja þá er óvissuferðin loksins búin og ég verð bara að seigja það að ég er engu nær hvert við vorum að fara... við semsagt lögðum af stað um hálf 6 frá Eir og þá var fólk byrjað að sötra bjóranna sína og að komast í stuð... síðan leggjum við í hann og það er sami húmor og í fyrra að koma með tópas og epplasnafs í þvagpoka en þetta rann vel niður hjá okkur ollum síðan var boðið uppá bjór og eins mikið af tópas og epplasnafsi og maður gat í sig látið.. og það sem var líka eins í fyrra var að við keyrðum somu leið útur bænum og beygðum á sama stað og var gert í fyrra.. en í staðin fyrir að stoppa í laxnesi eins og gert var í fyrra héltum við áfram og keyrðum og keyrðum þanngað til að allir voru að pissa á sig þá var stoppað og pissað og reykt... eftir það var haldið áfram að keyra og næsta stopp var svo á þingvöllum þar sem við héltum nú að við myndum stoppa þar til að borða og gera eitthvað skemmtilegt..og þeg tek það fram að ölvunnin var orðin verulega mikil þegar að þarna var komið við sogu... en allt kom fyrir ekki okkur var öllum hent uppí rútu og það var haldið áfram að keyra og með nokkrum pissustoppum komumst við á laugarvatn og við héltum þá að við myndum stoppa þar en nei við brunuðum í gegnum laugavatn.. og héltum áfram og næsta stopp var við geysir og þar var okkur sagt að taka allt útur rútunni og við vorum mjög fengar að fá loksins eitthvað að borða og að geta byrjað aðalfjörið... en eins og í öllum fyrri stoppunum var farið beint á klóið og eftir það vildu allir bara fara að koma sér fyrir og gera sig til fyrir matinn en nei þá vorum við dregnar á eitthvað safn þarna sem var ágætt að skoða bara...eftir safnið var okkur tilkynnt að rútuferðin myndi halda áfram... sem vakti ekki mikla ánægju þar sem við vorum búin að vera að keyra í rúma 4 tíma... en við héltum áfram og enduðum á selfossi og þar borðuðum við og rétt þegar að stuðið var að byrja var okkur hent út í rútu aftur og það var bara brunað í bæinn.. ég var nú frekar ósátt við þetta ásamt fleirum.. en það var ekkert óvænt við þessa ferð þar sem við vissum að við myndum borða... þannig að ég er engu nær hvað þessi óvænti hluti af ferðinni var nema kannski þessi rúmlega 5 tíma rútuferð... en þegar að við komum í bæinn þá fór ég í bæinn að hitta elísu og hildi.. þar sem við dönsuðum eins og brjálæðingar.. en síðan stakk hildur okkur af og fór á nasa... þannig að ég og elísa fórum að hitta ellu og vinkonur hennar.. en þar sem áfengismagnið í blóðinu var orðið frekar hátt hjá okkur báðum... og þurfti mikið að stoppa á leiðinni og einmitt í einu þannig stoppi mættum við leikaranum sem lék geroge of the jungle... og elísa missti sig aðeins en við ræðum það ekkert hérna... hehe þegar að við komum svo loksins á hressó var dyravorðurinn með einhverja stæla en við fengum nú að fara inná endanum... þar sem við dönsuðum og dönsuðum þar... kl svona 3 vorum við elisa orðnar frekar þreyttar enda báðar búnar að vera að djamma síðan kl 5 um daginn þannig að elísa ákvað nú að fara heim enda átti hún að mæta í vinnu kl 7 í morgun... en ég fór með ellu og stelpunum á pravda og þar dönsuðu stelpurnar af sér rassgatið en ég sat á meðan og barðist við að halda mer vakandi... eg og ella forum svo heim á leið.. með smá stoppi á einum stað... og svo í dag vaknaði ég um 11 fór á fætur um 1 guðmunda kom með katrínu og við stöllur fórum á pítuna að borða með henni elísu og svo vildi katrín fá ís og auðvitað lét ég það eftir henni og fór með henni í ísbúð... eftir ísbúðina fórum við heim og skriðum upp í rúm og settum valiant í tækið og kúrðum saman þanngað til Guðmunda kom að ná í hana... jæja ég hef þetta ekki lengra núna bless bless
30. september 2006 klukkan 23:41
Birgitta Ýr Guðmundsdóttir 1 athugasemd